Boltasystur
05.04.2007 21:19:30 / hjordistho

Starman

Goodbye love
Didnt know what time it was the lights were low oh how
I leaned back on my radio oh oh
Some cat was layin down some rock n roll lotta soul, he said
Then the loud sound did seem to fade a ade
Came back like a slow voice on a wave of phase ha hase
That werent no d.j. that was hazy cosmic jive

Theres a starman waiting in the sky
Hed like to come and meet us
But he thinks hed blow our minds
Theres a starman waiting in the sky
Hes told us not to blow it
Cause he knows its all worthwhile
He told me:
Let the children lose it
Let the children use it
Let all the children boogie

I had to phone someone so I picked on you ho ho
Hey, thats far out so you heard him too! o o
Switch on the tv we may pick him up on channel two
Look out your window I can see his light a ight
If we can sparkle he may land tonight a ight
Dont tell your poppa or hell get us locked up in fright

Theres a starman waiting in the sky
Hed like to come and meet us
But he thinks hed blow our minds
Theres a starman waiting in the sky
Hes told us not to blow it
Cause he knows its all worthwhile
He told me:
Let the children lose it
Let the children use it
Let all the children boogie

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 00:00:01 / hjordistho

Hjá þér

Þegar kviknar á deginum og í lífinu ljós
Þegar myrkrið hörfar frá mér,
þá er eitthvað sem hrífur mig eins og útsprungin rós
-þá vil ég vera hjá þér.

Ég vil bæði lif'og vona,
ég vil brenna upp af ást.
Ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.
Meðan leikur allt í lyndi,
líka þegar illa fer.
Meðan lífið heldur áfram
-þá vil ég vera hjá þér.

Þegar slokknar í deginum yfirþyrmandi nótt
stormar fyrir stjarnanna her.
En það bítur mig ekkert á og ég sef vært og rótt
ef þú vilt vera hjá mér
- þá vil ég vera hjá þér...

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 00:05:25 / hjordistho

The Blowers Daughter

And so it is
Just like you said it would be
Life goes easy on me
Most of the time
And so it is
The shorter story
No love, no glory
No hero in her sky

I can't take my mind off of you
I can't take my mind off you
I can't take my mind off of you
I can't take my mind off you
I can't take my mind off you
I can't take my mind...
My mind...my mind...
'Til I find somebody new

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 14:26:03 / hjordistho

Sometimes you cant make it on your own...

Tough, you think you've got the stuff
You're telling me and anyone
You're hard enough

You don't have to put up a fight
You don't have to always be right
Let me take some of the punches
For you tonight

Listen to me now
I need to let you know
You don't have to go it alone


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 00:08:58 / hjordistho

Áramótaheit

Gleðilegt nýtt ár!

Var rétt í þessu að strengja áramótheit... ætla að hætta að blogga! Hef komist að því að mér finnst það bara ekki nógu skemmtilegt, eða þá að ég lifi ekki nógu spennandi lífi til að vera að segja frá... eða of spennandi lífi sem á ekki heima í frásögn á veraldarvefnum... hver veit?!?

Áramótaheitið getur í hlutarins eðli ekki byrjað fyrr en þessari færslu er lokið en mér fannst dyggir lesendur eiga skilið að vera sagt upp svona augliti til... já, skjásins ;) og síðan ef einhver annar andi kemur yfir mig þá væri það ekki í fyrsta skipti sem fólk stendur ekki við áramótaheitið sitt... hef samt góða trú á því að mér eigi eftir að ganga ágætlega með þetta eina áramótaheiti mitt 8)

Lifið heil lömbin mín!


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 17:15:45 / hjordistho

BÚIN Í PRÓFUM!!!

Varð bara að deila þessu með fólki... 45 mínútur búnar af 17 daga jólafríi :)

Tekið er við hamingjuóskum í kommentum ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 17:15:44 / hjordistho

BÚIN Í PRÓFUM!!!

Varð bara að deila þessu með fólki... 45 mínútur búnar af 17 daga jólafríi :)

Tekið er við hamingjuóskum í kommentum ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 23:25:49 / hjordistho

Prófaleti

Held ég sé ekki búin að tala um neitt í allan dag við nokkurn mann annað en hvað mér leiðist að vera í prófum og hvað ég nenni því ekki... síðan er ég líklega að undirstrika það með því að vera að blogga sem ég geri eiginlega aldrei nema ég eigi að vera að gera eitthvað annað! Tölvan er ekki að sýna samhug í verki í þetta skiptið með því að loka alltaf explorerinum mínum eins og einu sinni.

En ég vil alla veganna hér með afsaka mig við þá sem ég hef vælt í í dag út af prófalestri því ekki vill maður vera þekktur sem einhver vælari ;) Ætla bara að læka Pollýönnu og tala bara um það hvað er stutt þangað til ég er búin... bara  sex litlir dagar :D Þá verður nú gaman... amk í nokkra daga þangað til maður þarf að fara að hafa áhyggjur að jólaprófum nr. 2... og hún er farin að æla aftur, þeir (eða frekar þær) sem þekkja til mega hér með fara að kalla mig HM ;) Er að fara að vinna sem aðstoðarlæknir á medicine á morgun... finnst ég vera svo fullorðin :) Að vísu smá hnútur í maganum... er held ég ekki alveg reiðubúin í CPR en það er nú fullt af fólki til að bakka mig upp :) Síðan fór ég á innanhúsæfingu á Skaganum í dag... innanhússbolti er alltaf jafn skemmtilegur þó ég hafi kannski ekki alveg þá tækni sem þarft til að vera góð í honum! Síðan Íslandsmót á laugardaginn... ég er sem sagt að fara læra eitthvað takmarkað fyrir þessi próf!

En farin að sofa... ha´ det bra :)


» 101 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 21:40:00 / hjordistho

BBA (bad bloggers anonymous)

Ég heiti Hjördís, ég er lélegur bloggari

Er farin að sjá eitthvað mynstur í þessu hjá mér... blogga ca. 7 skipti og tek síðan svona nokkra mánuða pásur inn á milli! Er að reyna að berjast við það núna að taka ekki þessa löngu pásu núna... eða bara hætta þessu alveg ;) ...eða hvað?

Er að vísu ekki að nenna að blogga núna þannig að þetta er bara málamyndafærsla... samt bara allt fínt að frétta, styttist í próf 8| Fór samt á innanhússæfingu í gær í fyrsta skipti í 2 ár sem var mjög gaman :) og vegna manneklu á Skaganum fæ ég líklega bara að spila í Íslandsmótinu 3. des! Allir að koma að horfa svo við komumst í úrslit og getum spilað á móti Breiðabliks-risanum (a.k.a. KR 2)!

En best að þykjast læra eitthvað!

1. geðorð: Hugsaðu jákvætt, það er léttara :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2005 19:59:03 / hjordistho

Kúba

Hola! Vildi bara deila með fólki að það eru 16 dagar í Kúbuferð! Þori fyrst núna að nefna þessa ferð því Anna hefur hótað öllu illu ef maður talar um hana og nú er hún farin af landi brott þannig að þetta ætti að vera í lagi ;) Plön hafa breyst þannig að Þorsteinn Þór verður með í för sem er náttla bara gaman :D Stefnan er sett á jeppasafarí, kóralasiglingu og bara fullt skemmtilegt! Er alveg að verða pirruð á myrkrinu sem er þegar ég vakna á morgnana núna þannig að þessi ferð er mjög kærkomin! Sé á skoðanakönnuninni að það er enginn með væga útgáfu af skammdegisþunglyndi eins og ég og væri til í að búa í Ástralíu með mér á veturna ;) Fer þá bara ein þangað!

Annars skellti ég mér upp í bása um seinustu helgi og sló nokkra golfbolta með Bryndísi og Halla golfurum. Er fyrst núna að ná mér í höndunum og herðunum... líklega ekki alveg með réttu handbrögðin ;) En þetta kom skemmtilega á óvart og var alls ekki JAFN leiðinlegt og ég hélt eins og ég orðaði það skemmtilega! Annars eru þau skötuhjúin í Californiu núna og fékk ég eitt stykki myndskilaboð um daginn af Bryndísi með þessu fína pálmatréi... ekki slæmt!

Annars er vikan búin að vera fín... litla systir heima og mörg matarboð að baki fyrir utan kökuveisluna sem stóra systir stóð fyrir í tilefni af afmæli Valgerðar. Sigrún kom sterk inn í marengstertunum :) Fólk getur séð myndir úr afmælinu á www.123.is/icequeen!

En ætla að halda áfram að lesa um þunglyndi... eða jafnvel detta í þunglyndi fyrir framan Eurovision í 50 ár, spennó 8|


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 12:07:38 / hjordistho

Geðlækningar...?!?!

Sérdeilis prýðilega góð vika að baki núna! Fínt að frétta af öllum vígsstöðum :)Geðkúrsinn byrjar bara líka svona ljómandi vel... hefur verið hálfgerð togstreita í gangi hjá mér á milli þess að viðhalda þeim fordómum sem ég haft í garð geðlæknisfræðinnar undanfarin ár og að langa bara oggupínkulítið til að verða geðlæknir 8| Hvað er það?!? Maður er ekkert geðlæknir ;) Að vísu er ég búin að vera svo jákvæð undanfarið að mér finnst eiginlega allir geirar læknisfræði skemmtilegir og langar helst að hafa að minnsta kosti 5 sérfræðingsleyfi og verða landsins snjallasti læknir :lol:

Annars er líka bara frábær helgi framundan (aldeilis hvað ég er jákvæð svona í morgunsárið ;) ).  Litla dýrið að koma heim í kvöld og djammboltinn ætlar víst beint á djammið... held ég beili samt á henni og leyfi henni og Gullu að skandalast eitthvað upp laugaveginn á eigin spýtur ;)  Síðan er afmæli hjá litlu sætustu Valgerði á morgun! og hver veit nema ég brjóti odd af oflæti mínu og slái nokkra golfbolta í dag... þó það sé náttla langt fyrir neðan virðingu mína ;)

En góða helgi allir nær og fjær

Ps. vil einnig þakka Evu og Báru fyrir tíð innlit :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 22:42:16 / hjordistho

Tileinkað Jóa og Önnu og Sissu!

Ákvað að gleðja fjölmarga aðdáendur mína sem lesa síðuna reglulega (a.k.a. Anna og Jói og Sissa) og skella inn einni færslu!
Að baki er þessi fína helgi... náði að vera í þrjú matarboð þrátt fyrir að vera að vinna bæði laugardag og sunnudag! Fyrir þá sem ekki átta sig alveg á mér þá eru þrjú matarboð ávísun upp á góða helgi fyrir matargat eins og mig :D Fór með próffélögum úr taugalæknisfræði í matarboð og gott partý á föstudag þar sem nærvera var btw mjög góð ;) Kíktum svo á októberfest HÍ þar sem var krökkt af fólki og því stoppaði ég stutt og við tók stutt bæjarferð og síðan aðeins lengri göngutúr sem var í raun betri en bæjarferðin og októberfest til samans :)
Síðan eftir vinnu á laugardag tók við hammaraát hjá Sissu og famelíu! Sá hittingur hafði það orð á sér að hann væri mjög vel skipulagður í tíma... vá einkadjókur (eins gott að þú hlæjir Siss!) En mjög góð kvöldstund þó að strákarnir hafi fengið sínu framgengt og lagst í sjónvarpsgláp fremur en pictionaryveislu þrátt fyrir að vera í miklum minni hluta :^)
Síðan liðu nú rétt rúmlega 12 tímar í næsta matarboð sem var lambalærisveisla ala Mamma þar sem að litla sæta fólkið frá Selfossi sat einnig til borðs ásamt foreldrum... alltaf gaman af því :)
Þetta var s.s. helgin í hnotskurn og nú sit ég í Sunnuhlíð eins og svo oft áður þegar ég nenni að blogga ;) Hef að vísu haft það gott hér í kvöld... fór með kvöldlyfin inn á öll herbergin og fékk bara þetta fína kompliment í öðru hverju herbergi! Ein vildi meina að ég væri prinsessa og vildi setja kórónu á mig (á kórónunni átti að vísu að standa nafn mitt og átti kórónan aðallega að gegna því hlutverki að hjálpa konunni að muna nafnið mitt og prinsessutilnefningin kom í kjölfar kórónuhugmyndarinnar þannig að þetta var nú kannski ekkert mjög mikið hrós) sá næsti sagði að honum finndist hann alltaf svo öruggur þegar hann sæi mig... segja svo að maður hugsi ekki vel um fólkið hér 8)
Síðan byrjaði ég á geðkúrsi í dag og hélt ég væri að fara í einhver rólegheit en Engilbert gleðipinni setti fyrir mig þetta fína verkefni sem ég er að hugsa um að halda áfram þar sem ég tel mig núna vera búin að gleðja fólkið mitt!
Hafið það gott lömbin mín!

ps. vil enn og aftur pressa á Eyju að stimpla sig aftur inn í bloggveröldina!

» 9 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 19:28:53 / hjordistho

KSÍ og fleira

Ætla hér með aldrei að tala við litlu systur mína aftur... maður heldur loksins að eitthvað sé að lifna til í lífi manns þegar ókunnugir menn eru farnir að kommenta á síðuna manns þannig að lífið hrynur bara þegar maður kemst að því að þetta er bara litla dýrið 8| Sem sagt enginn Gunnar Karl að kommenta hérna og væntanlega ekki heldur neinn hippi! Ætli maður hætti ekki bara að blogga út af þessu ;)

Fór á KSÍ um helgina... stóð svo sem fyrir sínu en það var nú skemmtilegra á þeim hérna í gamla daga í minningunni! Kannski að ástæðan liggi í því að maður er vanur að hafa eitthvað að uppskera en ekki vera í síðasta sætinu í deildinni ;) Eyrún hljóp í skarðið vegna einhvers extramiða sem var til og var það gaman... Sandran var í rólegri kantinum og fór ekki að sjá á henni fyrr en hún hitti Hjördísi ;) Annars vil ég bara þakka öllu fólkinu fyrir fínt kvöld þó að Önnu Þ. og S. hafi verið sárt saknað!

En annars lítur út fyrir almenna þreytu og leiðindi út þessa viku enda próf á föstudaginn og það fór eitthvað lítið fyrir lærdómi um helgina:!: En þangað til: hafið það gott :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.10.2005 00:39:18 / hjordistho

Hæ Gunnar en hver er hippinn??? :)

Skemmtileg og óvænt ánægja að fá komment frá Gunnari fyrrum MK-ing með meiru hér á síðunni :) Núna virðist samt vera kominn nýr huldumaður að kommenta... hringurinn aðeins þrengri í þetta skipti þar sem að hann þekkir Stellu skólastjóra og er þá væntanlega úr Hjallaskóla! Þetta er orðin þvílík spæjarasíða hjá mér :D

Annars er ég á Selfossi að passa tvö af yndislegustu börnum á jarðkringlunni :) Eftir að litla skvísan sofnaði yfir snilldarteiknimyndinni Robots fórum við Þorsteinn Þór í FIFA 2005 og ég lét hann rúlla mér upp nokkrum sinnum! Síðan náði ég að gera jafntefli í eitt skipti og ákvað þá að hætta "á toppnum"! Hann hrósaði mér samt fyrir hvað ég væri góð í þessum leik... þ.e. miðað við síðasta fótboltaleik sem ég spilaði við hann og tapaði alltaf með amk 5 marka mun! Hefði kannski átt að hanga meira í tölvunni þegar ég var yngri og sleppa einhverjum af þessum "alvöru" fótboltaæfingum ;) En ætla að fara að halla mér þar sem að við Valgerður eigum að mæta í íþróttaskólann klukkan 10 í fyrramálið 8) og síðan verður maður að vera ágætlega úthvíldur fyrir KSÍ á morgun! Nighty night

ps. skipti út könnunni... við óska þeim fjölmörgu sem höfðu rétt fyrir sér að við mundum gefast fljótlega upp aftur :) gott að vita að vinir manns hafi svona mikla trú á mann!


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 18:58:22 / hjordistho

Hjördís is on fire....

....eða bara alls ekki að nenna vera í vinnunni!
Vildi bara benda forvitnum á sem geta ekki beðið eftir ferðasögu (sem kemur líklega aldrei ef ég þekki mig rétt) á síðu Evu og Himms sem hafa verið einkar dugleg að henda inn myndum af ferð TTT til New York. www.evaoghilmar.tk Enjoy!

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4